Mæðraveldið by Mæðraveldið published on 2019-09-30T15:52:43Z Fyrsta stuttskífa Mæðraveldisins er lagið "Mæðraveldið" af samnefndri plötu. Hún fer í rafræna dreifingu 10.október 2019. Rapparinn og upptökustjórinn Sesar A leitaði að hljóðfæraleikurum til þess að stofna hljómsveit. Markmiðið var að lögin yrðu alfarið leikin á hljóðfæri og að sem flestir meðlimir hljómsveitarinnar yrðu kvenkyns. Þegar kjarni sveitarinnar var kominn var hent í nokkrar spunaspilsæfingar, þar sem Sesar kom með grunna að lögum og hljóðfæraleikarar leiku sér með laglínur þar ofan á. Í því ferli, sem fékk góðan tíma, varð nálgunin skýrari. Hljómsveitin skildi flytja sín lög með hljóðfæraleikarum í bland við forritaða hluta. Í stað þess að nafn sveitarinnar myndi bera nafn rapparans, líkt og algengt er þegar söngvari fer fyrir hljómsveit, þá lagði hann til sjálfur að sveitin skyldi kölluð Mæðraveldið og var það samþykkt. Auk Sesar A er sveitin skipuð Þórdísi Claessen á bassa og Margréti G. Thoroddsen sem syngur og leikur á hljómborð. Tónlistin er í grunninn hipp hopp með föstum takti. Hann myndar grunn undir deiglu af ólíkum stefnum dansvænnar tóna. Innblásturinn er sóttur meðal annars frá vesturströnd BNA og Karíbahafsins auk áhrifa frá samtíma afrískri danstónlist. Yrkisefni eru fjölbreytt. Meðal annars persónuleg, rómantísk en einnig er velt upp samfélagslegum spurningum. Genre Hip-hop & Rap