Ferðamenn — Sálin hans Jóns míns by Stefán Hilmarsson published on 2014-01-13T15:18:33Z Útgáfudagur 14. janúar 2014. Höfundar: Guðmundur Jónsson/Stefán Hilmarsson. Af plötunni GLAMR (2013). Hin íslenska og sumpart þjóðlega hljómsveit, Sálin hans Jóns míns, sendir nú frá sér nýtt lag í útvarpsspilun. Ber það heitið „Ferðamenn“ og er að finna á nýjustu hljómskífu sveitarinnar, GLAMR, en lagið var frumflutt á viðhafnartónleikum sveitarinnar í Hörpu þann 9. nóvember s.l. Tónverkið er af rólegra taginu og textinn n.k. hugleiðing um lífið og framvindu þess í víðu samhengi, með áherslu á tilfinningar, ást og sameiginleg örlög okkar allra. Gaman er að geta þess, að fyrrum Sálarmaður og núverandi kvikmyndatónskáld í Vesturheimi, Atli Örvarsson, útsetti strengjaparta lagsins. Genre Sálin hans Jóns míns