#1 Hildur Karen - ÍA by Sýnum karakter published on 2019-07-30T11:46:23Z Hildur Karen Aðalsteinsdóttir er fædd og uppalin í Bolungavík. Hún segir það algjör forréttindi að hafa fengið að alast upp í Bolungavík á þessum tíma: "Það var uppgangur, lífið snérist um íþróttir, frjálsar og fótbolti á sumrin, skíði og sund á veturna. Pabbi formaður í sundinu og mamma þjálfari í sundi. Það var draumur að alast upp í svona litlu samfélagi, svo mikil nánd, íþróttirnar nr. 1, 2 og 3". Þetta uppeldi mótaði hana mikið sem manneskju og var hún því ákveðin að flytja í svipað bæjarfélag eftir nám í Danmörku. Akranes varð fyrir valinu og nú er hún framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akraness.