24 - Gervigreind - Yngvi Björnsson by UT hlaðvarp Ský published on 2022-05-17T23:00:54Z Yngvi Björnsson er prófessor við tölvunarfræðideildina í Háskólanum í Reykjavík. Hann hefur beint athyggli sinni að gervigreind um langa hríð og var því heiður að fá að ræða við hann um einmitt það. Við spjöllum um gervigreind á almennum nótum svo þátturinn er aðgengilegur fólki óháð bakgrunni þess. Við förum vítt og breytt í samtalinu og snertum meðal annars á sögu gervigreindar, hvað gervigreind yfir höfuð er, hvað gervigreind er fær um að gera, gervigreind í tölvuleikjum og framtíð hennar. Við vonum að þið njótið þáttarinns jafn mikið og við nutum þess að taka hann upp. Genre Entertainment